sunnudagur, 11. febrúar 2007
Hvernig á að setja comment, skrifa skilaboð til okkar
jæja þá er það comment kennsla 101, eða réttara sagt kennsla í því hvernig þig getið skrifað skilaboð á síðuna okkar. Nokkuð hefur borið á því að fólk sé að kvarta yfir því að það sé ekki hægt að setja skilaboð á síðuna okkar. En hér koma einmitt leiðbeiningar hvernig gera á þetta. Fyrir neðan hverja ... stendur "comment" þið ýtið á það og þá er komið inn í annað umhverfi. í glugganum sem er til vinstri skrifi þið eitthvað sem þið viljið koma á framfæri við okkur, eða ábendingar varðandi síðuna eða senda okkur kveðju eða hvað sem er. Svo þegar því er lokið er frekar neðarlega hægra megin og þar stendur "Choose an identity" þar setjið hak í "other" þá birtist gluggi sem stendur fyrir framan "name" þar er nafnið sett, og svo er hinn glugginn sem fyrir framan stendur " your web page " þar getið þið sett til dæmis barnalands síðuna ykkar eða einhverjar aðra síðu sem þið eruð með og viljið deila með okkur.
En þá eru komnar leiðbeiningar um hvernig á að setja skilaboð á síðuna
Með kærri kveðju og von um að þið farið nú að setja comment inn á síðuna
Einar Eir
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Blessaður gamli. Sá auglýst í blaðinu í dag að loka-eurovisionkvöldið verður næsta laugardag. Ekki að maður sé e-ð spenntur f því einu og sér en maður er farinn að tengja eurovision við party heima hjá þér. Bara svona hugdetta!!
Jæja það var mikið að maður fékk kennslu í þessu comment máli hehe:) bara kær kveðja til ykkar héðan úr Keflavíkinni, gaman að fá að fylgjast með , kv fjölsk í kefló
Skrifa ummæli