
Búið er að hrinda afstað stærsta verkefni sem ráðist hefur verið í hér á heimilinu. Verkefnið er að græja "draslherbergið". Þetta hefur verið eins og draugur að elta okkur þetta blessaða herbergi, við höfum notað það undir endalaust drasl, og svo hafa ættingjarnir að norðan verið í því þeir þau koma í kaupstaðaferð. En nú er búið að taka þetta stóra skref og byrja, en þá er bara spurningin hve langan tíma þetta er að taka. Það sem við ætlum okkur að gera með þetta herbergi er að setja Elvar Mána í það og Ester Unu í herbergið sem Elvar er í núna, brilliant hugmynd. Vonandi að þetta sé ekki að fara að taka okkur alltof langan tíma. Hér við hlið er mynd sem var tekin í gærkvöldi inn í þetta hræðilega herbergi. Við seldum svefnsófann sem var þarna inn og var það eiginlega það sem kom okkur afstað í þetta núna. Svo er bara að finna pláss fyrir allt þetta "drasl". Látum ykkur vita hver framvindan verður á þessu stóra verkefni.
Í bili.
1 ummæli:
bara prófa fólk að kvarta yfir að geta ekki commentað
Skrifa ummæli