miðvikudagur, 21. febrúar 2007

Afmæli, öskudagur og veikindi


Heimilsmóðirin átti afmæli á dögunum,á bolludaginn þann 19 febrúar og varð hún árinu eldri en ég...reyndar varð hún árinu eldri en hún var deginum áður. Hún varð 28 ára en lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en 25 ára. Eins og venjulega var ekki auglýst neitt afmælisboð en opið hún var fyrir vini og ættingja sem vildu koma og heiðra hana á þessum tímamótum. Ester og Kristján komu í köku og kaffi. Sprengidagurinn var næstur á eftir eins og flestir ættu að vita. Í fyrsta skiptið hjá þessari fjölskyldu var eldað saltkjöt og baunir að gömlum sið, og tókst það svo líka glæsilega. Tókst það svo vel að heimilisfaðirinn át á sig gat eins og sagt. Át það mikið að hann var lagstur í rúmið með hræðilega verki fyrir tíu um kvöldið. Eins gott að þetta sé aðeins einu sinni á ári. Svo ég tali nú ekki um allar hertu fituna sem er í þessu..púúfff. Öskudagur, dagur barnanna. Elvar undirbjó sig nokkuð vel og var búinn að gera allt klárt kvöldið áður, það er að segja búninginn og allt það. Hann var ljón, hræðilegt ljón með svaka öskrum og látum. Hann sagði að þetta væri ljónið úr Narníu ( sem er ævintýra mynd fyrir börn ) Hann var alveg í skýjunum yfir þessu og var að farast úr spenningi þegar hann fór í leikskólann í morgun. Mikið var gert í leikskólanum þeim til gamans. Allir voru náttúrulega í búningum, bæði börn og eins eitthvað af fóstrunum. Það var pítsupartý, og svo var slegið í tunnu, alveg eins og í gamla daga. Nema hvað þegar tunnan fór þá hrundi haugur af snakkpokum úr henni ( snakki frá Stjörnusnakki sem nota ekki herta fitu ), og endalaus gleði var um allan skólann. Litla prinsessan á heimilinu er búin að vera rosalega veik undanfarna daga. Hátt í 40 stiga hita og gubbustand og ég veit ekki hvað og hvað. En við erum að vona að hún fari nú að hressast fljótlega. Jæja nóg í bili bið að heilsa EE og Ásk

Engin ummæli: