...jæja þeir gátu það, þeir gátu það blessaðir strákarnir okkar. Því miður gat ég ekki horft á hann þar sem ég var að vinna en ég hlustaði á hann í útvarpinu. Og vá ég haf aldrei orðið svo æstur yfir einhverju sem er í útvarpi. Enda var íþróttafréttamaðurinn sem var að lýst leiknum á Rás 2 algerlega að missa sig,
hann stóð á öskrunum alla seinni hálfleik,og æstist maður sjálfur allur upp við það.Þetta var stórleikur allavega af lýsingum að dæma, Roland og Birkir Ívar með frábæra markvörslu og voru hreinlega að bjarga þessu. En svo fór að líða á seinni og þá fór að líða á ógæfuhliðina og ég hélt að þetta myndi tapast en allt kom fyrir ekki og þetta tókst. Ég get því miður ekki tjáð mig meira um þetta þar sem ég sá ekki leikinn og á erfitt með það án þess.
Allavega draumur orðinn að veruleika fyrir all marga.
Minni alla á stuðningsmannasíðuna, rosalega skemmtileg síða
http://www.ibliduogstridu.is
kv Einar Eir
Engin ummæli:
Skrifa ummæli