mánudagur, 1. janúar 2007

Gleðilegt nýtt ár



Gleðilegt nýtt ár allir sem einn, og takk fyrir það gamla.
Nýja árið leggst voðalega vel í okkur stórfjölskylduna á Holtinu.
Við áttum mjög svo notalega stund í Garðabæ á gamlárskvöld, þar var saman komin stór hópur af stórglæsilegu fólki. Addi og Ragna komu með krakkana til ísland til að reyna að sprengja upp stóran hluta af Garðabæ, svo voru Guðjón afi og Inga amma, og svo auðvitað gestgjafarnir í Garðabæ Kristján afi og Ester amma ásamt honum Guðjóni Inga.

Flugeldaleiðangur: Leitað var að stærstu skotkökum sem voru seldar á stórhöfuðborgarsvæðinu og fundust þær í skuggalegu hverfi í kópavogi þar sem skuggalegir menn voru bak við heimatilbúið afgreiðsluborð. Var farið út með þrjár af stærstu kökum sem seldar voru hjá þessum mjög svo skuggalegu mönnum, með þær leiðbeiningar í farteskinu, að alls ekki mætti kveikja á þessu þar íbúðir eða fólk væri nálægt " þetta þarf að vera á opnum svæði " Einnig var keypt svakalega mikið af risaflugeldum sem voru hátt í það að vera jafnstórir og ég og Addi mágur. Þurfti heilan Nissan Almera og eitt stykki Ford fjölskyldu-Focus til að koma öllum herlegheitunum út úr skuggahverfi Kópavogs og beinunstu leið inn í Garðabæ. Þegar þangað var komið var hlaupið með þetta í neðanjarðarbyrgið í Hlíðarbyggð 17, þetta var mjög leynileg aðgerð þar sem verstu óvinirnir voru nágrannarnir, það átti að toppa þá algerlega og láta þá gefast upp fyrir klukkan tólf á miðnætti.

Þrif: Jæja að þessu öllu loknu var farið heim til að þrifa fjölskylduna enda kominn tími til. Liðið klætt í sparifötin og dubbaðir upp klárir til að mæta í veisluna

Veislan: við viljum byrja á því að þakka Ester ömmu og Kristjáni fyrir frábæran mat og veigar, þetta er erfitt að toppa fyrir nokkurn. Boðið var uppá tviréttaðan forrétt, smyglvarning frá Svíþjóð sem var î formi gæsalifra og rækjur, svo var borðið á borð kalkúnn sem var á stærð við kálf...hvílík stærð ég segi nú ekki annað.

Eftir matinn var farið á brennu sem var að þessu sinni í Arnarnesvoginum ( að ég held ) svakalega flott brenna, og mikið að fólki. Heyrðist úr mannmergðinni Amerískur drengur eiga orð við íslenska tengda móður sína, sem var að öllum líkindum komin vel ofaní seinni rauðvínsflöskuna " this is noting compairs to what we have in usa" þá þrumaði kerling á hann þvöglumælt og fín. "You ain´t seen noting yet "
Þetta var glæsileg brenna og einnig flugeldasýning sem Hjálparsveit skáta í garðabæ stóð fyrir, allir skátar geta verið stoltir af henni.
Á leiðinni heim var smáfólkið farið að verða óþreygjufullt og vildi fara að skjóta upp þessum flugeldum og kökum sem til voru í neðanjarðarbyrginu hjá afa, en nei nei bíða bíða..
Þegar inní hús var komið gegnfreðinn og kalinn, beið okkar ís...já ég veit en það var svakalega gott að fá sér heimagerðan ís ala amma.

Svo kom þetta venjulega eins og setjast fyrir framan imbann og horfa og hlægja af skaupinu, sem var að mér fannst þetta árið nokkuð vel heppnað, með nýju fólki og ekki alltaf bara grín af Óla Gríms og Dabba Odds og þeirra karaterum, það var í algeru lágmarki og var það mér til hæfis.

31.12.06 / 23:30. Sjónarhóll nágranna Hlíðarbyggðar 17, þeir vissu ekki fyrr en þeir heyrðu öskrað í myrkrinu: " Gerið skotpallinn klárann, Dragið seglin yfir bílana, börn og konur í neðanjarðarbyrgið, setjið gleraugun upp og hörfið.....heyrðist öskrað og á þeirri stundu fór fyrsta kvikindið í loftið, þeir sem stóðu of nálægt þeyttust í loftið og inn í nærliggjandi garða....þetta var "magnificent"...ok þetta er kannski aðeins ýkt, en þetta var svakalegt, en eins og Bubbi myndi segja "BOBA" eða bomba/ur. Ekki veit ég hvort allar þessar kökur og flugeldar sem skotir voru upp hjá okkur hafi orðið til þess að nágrannar hafi lagt árar i bát, og séu hættir að skjóta frá og með þessum áramótum, en allavega voru þeir toppaðir..halilúja..

Svo var setjið aðeins fram eftir miðnætti og kjaftað, en krakkarnir voru nokkuð hressir, Ester Una fór að vísu síðust að sofa og var það þegar klukkan var að ganga tvö. Við skötuhjúin fór heim eitthvað um tvöleytið eftir vel heppnað kvöld.

Við viljum enn og aftur þakka fjölskyldunni í Garðabæ fyrir okkur og einnig Adda og Rögnu fyrir samverustundirnar

Til að skoða myndir frá gamlársdag, smellið hér

Yfir og út..Holtsgengið

1 ummæli:

Við erum við sagði...

einungis að athuga hvernig þetta virkar