...maður getur ekki hamið tárin. Hvílíkur leikur hjá strákunum, þeir eru ekki dauðir úr öllum æðum. Maður leiksins að mínu mati án alls vafa Birkir Ívar. Þótt drengurinn sé málhaltur þá getur hann varið og það ekkert smá, hvílíkt og annað eins.
Alfreð hefur stappað í þá stálið, eða stappað á þeim eftir þennan hrörlega leik í gær, hann þarf þá allavega ekki að hætta þegar hann kemur heim.
En það er vonandi að strákarnir haldi þessu striki í milliriðlinum og láti ekki troða á sér eins og í gær.
En enn og aftur sönnuðu þeir að "Þeir eru strákarnir okkar"
Til hamingju Ísland að þið fæddust hér" Eilíf ást og hamingja
yfir og út
Einar og Ása
Engin ummæli:
Skrifa ummæli