þriðjudagur, 2. janúar 2007

Uppgjör árssins 2006 á Holtinu



Jæja þá er komið að uppgjöri ársins 2006 hjá okkur fjölskyldunni.
Margt dreif á daga okkar þetta ár og kemur hér það sem stóð upp úr.

Janúar: Ekki munum við eftir miklu sem gerðist þennan mánuðinn, nema hvað þá helst að heimilisfaðirinn tók við nýrri stöðu innan fyrirtækissins sem hann vinnur hjá, og er orðinn lagerstjóri Árdegis ehf.
Mamman var í fæðingarorlofi með Ester Unu og gekk þeim tveim mjög vel með hvora aðra.

Við gerðum það sama og flest allir núlifandi íslendingar og endurnýjuðum imbann okkar og fylgihluti. Fengum okkur LCD og heimabíó, hvoru tveggja af Sony gerð, voðalega fínt og flott.

Febrúar: Þennan mánuðinn átti ofur-mamma afmæli og varð hún 27 ára, en það er eins og hún sé ekki deginum eldri en 23 ára. Til fróðleiks og skemmtunnar má ég til með að segja frá þeim fjölskyldumeðlimum sem eiga afmæli í þessum stysta mánuði ársins, og hefst þá skriftin. Ása mamma, Kristján afi, Ester amma, Una amma, Guðjón afi, Karen frænka, Addi frændi og Ragna og svo Solla amma...vváááá hverjar eru líkurnar á því að nánsta allir sem eru í okkar fjölskyldu eigi bara allir afmæli í febrúar en við erum að tala um níu manns, og þetta er svo fyrir utan okkar vini sem eru einnig nokkrir í þessum ágæta mánuði, en nóg um það.
Ester Una byrjaði í ungbarnasundi og fannst okkur það voðalega gaman að fara í sund með litla krílið. Pabbinn fékk ljósmyndadellu. Keypt var fullorðins myndavél á heimilið og skipt út fyrir gamla hræið, sem var komin vel til ára sinna. Hún er af Sony gerð eins og annað sem var búið að kaupa það sem af var þessu ári.


Mars:Það var nú ekki mikið sem gerðist hjá okkur í mars, nema hvað, það fæddist hér eitt stykki Íþróttaálfur og var það á öskudaginn. Elvar var græjaður í búning og sendur í leikskólann, hann var yfir sig ánægður að vera eins og Magnús Skevíng.



April:
Þá átti ofur-töffarinn Elvar Máni afmæli og varð hann að þessu sinni 5 ára.
Haldin var þessi fína afmælisveisla og var Batman þemað sem slóg í gegn þetta árið.



Einnig voru páskar í þessum mánuði og ég held að ég hafi aldrei séð svona mikið að páskaeggjum nema á á einhverri páskaeggjakynningu í Smáralindinni, hvílíkt magn.
En þetta féll mínum manni í geð og var hann hæst ánægður með þetta allt sama.
Ester Una fékk einnig egg sem hún borðaði allt sjálf..nei nei smá grín en hún fékk að smakka.

Einnig var fyrsta grillveisla sumarsins í lok april og endaði hún með ósköpum eða hátt í það. Alma og Sara Líf komu í heimsókn og heimilisfaðirinn tók að sér að grilla kjúllabringur og kjöt...Grillið okkar var orðið gamalt og mjög svo lúið. Erfitt að ráða við nokkrun skapaðann hlut á því og virtist það á tímabili, hreinlega hafa sjálfstæðan vilja. Meðfylgjandi mynd segir allt sem segja þarf.
Við fórum til Akureyrar í lok april og dvölum þar í hreint ótrrúlegu veðri, í kring um 20 gráður á selsíus allan tíman. Fórum einnig í Mývatnssveit til Unu ömmu og Úlla afa í síðasta skiptið en þau eru fullt úr sveitinni í dag. Frábær ferð sem erfitt er að gleyma.

Mai: Jæja nú fóru hlutirnir að gerast og það hratt. Sól hækkaði hratt á Holtinu og sumarið datt inn um bréfalúguna. Ester Una fékk fyrstu tönnina sína og hefur frá þeim degi reynt að naga eða éta allt á þessu heimili. Hún byrjaði einnig hjá dagmömmu og þá fór mamma að vinna. Vann frá átta til eitt á daginn og fannst þeim báðum þetta mjög fínt. Una amma og Úlli afi komu suður og voru hjá okkur í nokkra daga.
Ása keypi línuskauta fyrir mig svo við gætum farið saman á skauta. En þetta var eins og ég vissi fyrir víst ekki eitthvað sem ég myndi ná fljótt. Ása hafði að vísu engu gleymt frá því í gamla daga og tók sig afskaplega vel út í þessari yðju



Júní:Í þessum mánuði var tekin ákvörðum um að kaupa nýtt grill, ekki annað hægt ef við ætlum að eta eitthvað grillkjöt þetta sumarið. Var fjárfest í þessu líka fína grilli í Nóatúni á gjafaprís. Þennan mánuðinn byrjuðum við einnig að endurnýja húsgögnin í stofunni hjá okkur og á ganginum með hjálp barnalands.is. Voru draumahúsgögnin keypt notuð á ruglverðum af hinum og þessum fjölskyldum sem voru að losa sig við þetta, heppin við. Var þessum "endurnýjunum" hjá okkur lokið í september.
Við fórum einnig norður þennan mánuðinn og voru þar yfir þjóðhátíðardaginn. Það var mjög gaman og fórum við til dæmis á sportbílasýningu, burn-out keppni og ég veit ekki hvað og hvað, allavega alveg fullt að gera. Alltaf gaman að fara til langa afa og lang ömmu.

Júlí: Ég fór með Ásu í óvissuferð sem endaði uppi í Svínadal í svakalegri fjórhjólaferð sem kom blóðinu hjá okkur báðum afstað. Mæli eindregið með þessu fyrir alla. Ég fór í sumarfrí og einnig Elvar og Ester Una.Una amma Úlli afi Rósa amma og Einar afi komu öll suður. Þau voru einmitt með sumarbústað á leigu í Borgarfirði og fórum við til þeirra í einn dag og eina nótt. Fyrsta útilegan okkar var að Apavatni með stórum hópi af fólki, fengum við fellihýsi og jeppann að láni hjá Ottó afa og Sollu ömmu. Þetta var voðalega fín ferð og Ester Una skemmti sér konungleg en Elvar var einmitt fyrir norðan. >Svo var farið í aðra sumarbústaðaferð í Borgarfjörðinn og þá til Erlu og Villa vinafólks okkar. Það var einnig æðislegt ferð og fengum við æðislegar veitingar og veigar allan tímann sem við vorum þar. Sjá mynd til hliðar af glæstum veitingum.



Ágúst: Ása byrjaði í sumarfríi í byrjun mánaðarins og var strax farið afstað. Og ekki var minna að gera hjá okkur útilegu/sumarbústaðfólkinu í ágúst frekar en í júlí. Við byrjuðum á því að fara í útilegu með Andra, Lólí og krökkunum að "Hassstöðum" í Uppsveitum Árnessýslu, annars mig minnir nú að þetta heiti nú Iðufell. Þar eyddum við einhverjum 4 dögum í misjöfnu veðri en gaman samt. Við gistum í Hústjaldi sem var ekkert smá smíði einhverjir 12-14 fm að stærð. Þegar við vorum búin í tjaldútilegunni þá fórum við í sumarbústaðinn hjá Kristjáni afa og Ester ömmu. Þau voru að vísu ekki með okkur þannig að við dvöldum þar ein. Þetta var í síðasta skiptið sem við vorum í bústaðnum þvi það var verið að selja hann, þannig að það voru blendnar tilfinningar að vera þarna í síðasta skiptið. Við fengum eina heimsókn meðan við voru þar og það voru Raggi, Donna og strákarnir sem kíktu á okkur. En þá var þetta síðasta skiptið í bústaðnum, síðasta skiptið í pottinum og síðasta skiptið sem hægt var að standa á veröndinni og njóta þessa gríðarlega útsýnis sem þarna er.
Við fórum einnig norður um miðjan mánuðinn og fórum á Fiskidaginn mikla á Dalvík. Þar sem hægt að smakka allskonar fiskigúmmelaði og meðal annars Fiskiborgara með hringormi sem Ása fékk, gómsætt og girnilegt. Elvar Máni fór án okkar til útlanda. Hann fór með Ester ömmu og Kristjáni afa til Svíþjóðar að hitta Adda, Rögnu, Kristján Atla og Berglindi. Varð hann uppfullur af ýmsum fróðleik eftir dvöl sína þar. Hann skemmti sér allavega kounglega. Hann byrjaði svo að loknu sumarfríi í nýjum leikskóla í Hafnarfirði sem heitir Vesturkot. Kúturinn kanna voðalega vel við sig þar.

September: Ekki var nú mikið sem gerist hjá okkur í þessum mánuði fyrir utan að Einar afi og Rósa amma komu í heimsókn til okkar.

Október: Heimilisfaðirinn byrjaði þjálfun hjá Björgunnarsveit Hafnarfjarðar og voru það stífar æfingar í hverri viku fram eftir vetri. Fór ég meðal annars uppá Sólheimajökul í ísklifur og var það ógleymanleg lífsreynsla. Annað sem gerðist í þessum mánuði var það að Ester Una byrjaði aðeins að labba meðfram borðum og þess háttar

Nóvember: Litla skuttlan átti eins árs armæli og var haldin veisla. Átti þetta að vera heljarinnar veisla en vegna mikilla snjóþyngsla á höfuðborgarsvæðinu komust mun færri en áætlað var.Ása fór til Danaveldis að hitta Jórunni og ég, Elvar og Ester Una fórum í sex daga frí norður til að vera með fólkinu okkar þar. Það breyttist reyndar í rosalega ferð þar sem Ester Una varð fárveik á degi eitt og var uppgang og niðurgang og ég held bara alla ganga sem hægt er að fá. Litla skinnið var allavega fárveik allan tíman sem við voru fyrir norðan. En á meðan þessu öllu stóð þá byrjaði hún að labba á fullu og hefur ekki stoppað síðan. Svo þegar við vorum að fara aftur suður meðal annars til að ná í mömmuna á flugvöllinn á byrjaði Elvar að gubba, og var hann gubbandi alla leiðina suður. Miklir fagnaðarfundir brutust út á flugvellinum þegar mamma kom frá Dönunum.
Annað er nú okkur ekki mjög minnisstætt.

Desember: Hátíð ljós og friðar. Ég pabbinn á heimilinu átti afmæli þann fjórða. Einnig fór ég og Elvar í byrjun mánaðarins að hjálpa Grýlu að leita að jólasveinunum sem sluppu frá henni. Það fór fram í Hellisgerði í Hafnarfirði með leikskólanum hans. Var mikið fjör þegar gormarnir voru að hlaupa á eftir þeim úm allan garðinn. En að lokum náðust þeir og Grýla fór með þá heim og át þá. Rósa langa amma og Una amma kom suður og gerðu jólainnkaupin og voru hjá okkur í einn dag. Piparkökubakstur er orðinn árlegur viðburður hjá okkur feðgunum þar sem við hnoðum og gerum allskonar fígúrur úr deiginu og var það mjög svo skemmtileg stund. Ég var að vísu mikið í vinnunni þannig að ég sá fjölskylduna ekki eins mikið og ég vildi fyrr en líða tók á jólin. Jólin voru síðan eins og á mörgun heimilum hápuntur desembers. Mikill undirbúningur var allan daginn. Elvar að laga til og gera jólahreingerninguna í herberginu sínu og foreldarnir að undir búa veislu kvöldsins.
Maturinn tókst gríðarlega vel og fékk Elvar að velja hvað var í forrétt. Humar í hvítlaussmjöri alveg eins og Jón Gnarr borðar. Guttinn var hæst ánægður með það. svo kom hamborgarhryggur og svo jóladesertinn. Pakkaflóðið var ólýsanlegt og er best að sjá það á myndum ( sjá á myndasíðunni okkar ) Elvar var orðinn mjög æstur og allt í einu voru allir pakkarnir merktir honum, eða það var allavega það sem hann las á pakkamiðunum. Ester Una var einnig frekar æst framan af en missti svo eiginlega áhugann og fór að gera eitthvað allt annað. Svo kom gamlárskvöldið sem hægt er að lesa um hér að neðan.

Þetta var ársskýrlsa Bæjarholtspúkana og viljum við þakka ykkur öllum fyrir hjálpina að gera síðasta ár eins skemmtilegt og það var. Þökkum þér einnig fyrir að nenna lesa svona langan pistil

Kær kveðja Einar, Ása, Elvar Máni og Ester Una

1 ummæli:

Brennzi sagði...

Sæll kappi

Það er nokkuð ljóst að þið fjöldskyldan hafið ekki setið auðum höndum á árinu, og var gaman að renna yfir "the highlights"

Gleðilegt ár gamli og takk fyrir þau gömlu.

Kær kveðja Brennzi