miðvikudagur, 24. janúar 2007

Svartsýni en svo birti yfir öll



..jæja enn einn sigurinn í höfn og það á stórliði Túnisa. Ég verð nú að segja það að ég var frekar svartsýnn á þenna leik. Ég var búinn ( og fyrirgefið mér allir sem einn, í blíðu og stríðu ) að spá Íslendingum tapi í þessu leik. Það var ekki af því að Túnin séu mikið betri þó þeir eigi að vera það, heldur fann ég það einingis í hjarta mér að þetta yrði týpískur ósigur eftir stórsigur. Túnis eru með frábært lið, þeir eru með svona sprengilið. Byrja með allt á fullu og valta yfir allt og alla í fimmtán mínútur og svo er allt búið og þeir líka. Þeir áttu mjög góða spretti og ég ætla ekki að taka það af þeim. En ég var ansi viss á minni spá þegar langt var liðið á fyrri hálfleik, en svo kom seinni...og vá þá gaus upp þessi svakalega okra, þessi ótrúlega alíslenska orka. Rétt eins og Geysir á gjósa rétt eftir að hann hafi verið fylltur af grænsápu. Hvílíkt spil, hvílíkt lið. Enn og aftur sönnuðu þeir að þetta eru strákarnir okkar..
Ef Guðjón Valur verður ekki valinn maður mótsins þá skal ég éta tölvuna mína, allavega kexpakkann sem er við hliðina á henni. Ég vona að allir hafi verið jafn spenntir yfir þessu eins og við kærustuparið. Get ekki beðið eftir að klukkan verði 17:30 á morgun.
Lifið heil þangað til, Í blíðu og stríðu www.ibliduogstridu.is

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er kallinn allur að spennast upp?
Þú ættir nú bara að fara að skrifa pistla fyrir íþróttasíður Morgunblaðsins :)