þriðjudagur, 23. janúar 2007

Sáum milljónir í hyllingum..



Við vorum nánast farin að ráðfæra okkur við lögfræðinga varðandi lögsókn á hendur Osta og smjörsölunni og hana nú.
Við vorum í mestu makindum að elda kvöldmatinn og meðal annars var verið að búa til sósu sem uppistaðan í var sveppasmurostur. Skeið er tekin og helmingnum mokað úr dollunni og skellt í pott. Því næst er farið að hræra í pottinum til að lina smurostinn og láta hann bráðna. Vitum við ekki fyrr en farið er að hringla í pottinum, eins og það sé eitthvað í pottinum sem ekki á að vera þar. Þessi umfram hlutur er veiddur upp úr og viti menn...þetta var eitthvað í ætt við skrúfu..HA !!! hvernig gat þetta komið í ostinn..þetta er frá Osta og smjörsölunni..þetta hefur örugglega dottið ofaní stóra pottinn þeirra sem osturinn er gerður í..Þetta er eitthvað sem við verður að fá til baka með bótum, ekki spurning ( taka einn Ameríkana á þetta ). Svo var farið að líta aðeins í kringum sig og fundum að þetta var ofan af piparkvörninni. Þetta hafi þá dottið ofaní þegar verið var að krydda í nærliggjandi pott. Milljónirnar hurfu eins og ský fyrir sólu...en það er aldrei að vita nema við verðum svona "heppin" einhvern tíman aftur..

kv Matgæðingarnir Einar og Ása

Engin ummæli: