Maður leiksins, náttúrulega Snorri Steinn Gaupason undradrengur sem ekkert fékk stoppað reyndi allt sem hann gat, og svo þessi róbóti sem var í markinu hjá Dönum. Ef hann væri ekki aftan við þá, þá væri þeir ekki neitt, og við hefðum tekið þá í fyrri 30. Skil samt ekki hvað er verið að setja Hreiðar í markið, það er alveg eins hægt að sleppa því að hafa markmann...Talandi um markmenn, Hreiðar með 2 varin og Birkir Ívar með fjögur..eg segi nú bara eins og Bubbi kóngur hefði sagt, "COMMONNNN" Allavega mikil sorg í Bæjarholti eins og öðrum heimilum í landinu. Einhver verður biðin í það að við förum til Danaveldis það er alveg á hreinu. Þetta er þá síðasti pistillinn um Íslenskan handbolta á þessu bloggi allavega þangað til árið 2008 þegar næsta keppni verður háð. Vonandi við verðum búin að jafn okkur á þessum ósigri þá, eða að minnsta kosti ég og Ása, vonbrigðin eru mikil, líkt og hjá Snorra Steini. Við sendum þeim okkar bestu óskir með frábæra frammistöðu á mótinu og tökum við þeim opnum örmum eru þeir ganga niður landganginn á fríhöfninni.
Það er spurning hvort þeir syngi umleið " við gerðum okkar, gerðum okkar, gerðum okkar, gerðum okkar besta. En aðeins betur en það var ekki nóg". óskum stráknum okkar til hamingju með árangurinn. Einhver segir kannski " þetta er ekki búið " en fyrir okkur er þetta búið. Það var einungis tvennt í stöðunni. Heimsyfirráð eða dauði, og þetta var dauði.
Handboltahorni Einars og Ásu er hér með lokið, yfir og út.
www.ibliduogstridu.is
Engin ummæli:
Skrifa ummæli