laugardagur, 17. febrúar 2007

Komin mynd á herbergin


Jæja þá er þessu ævintýri lokið, krakkarnir komnir í sín eigin herbergi. Þetta er búið að taka okkur tvær helgar, tvær helgar þar sem íbúðin hefur verið í algeru messi. En þessu er nú loksins lokið. Elvar er í skýjunum yfir herberginu sem hann er komin í. Einhvern veginn rúmast allt miklu betur inni hjá honum núna þó svo þetta herbergi sé ekki nema 7 cm breiðara en það sem hann var í. Ester Una er líka í skýjunun, hún er allavega búin að vilja hjálpa mikið til, notað hvert tækifæri þegar hurðin opnast að hlaupa inn og reyna að gera eitthvað af sér. Bara að ná að gera eitthvað. Það eina sem á eftir að gera er að koma fyrir eitthvað af þessu drasli sem eftir er. Búið er að henda gríðarlega miklu og erum við ekki farin að sakna neins af þessu ennþá allavega. Ég er alveg vissum að við gætum komist í innlit útlit fyrir breytingar fyrir lítinn pening. Við náðum að breyta þessum tveim herbergjum fyrir innan við 12.þús og geri aðrir betur. Þið getið smellt á linkinn hér að neðan þar getið þið sé myndirnar af nýju herbergjunum.
kv Einar og Ása
http://picasaweb.google.com/einareir/NJuHerberginBJarholtinu/photo#5032631635599894978

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Komið þið sæl og blessuð fallega fjölskylda.
Langaði að skila eftir kveðju og kvitta fyrir mig gaman að sjá myndir af frænku og frænda sem ég hef ekki ennþá sé auglitis til auglitis, hvernig er þetta þarf móðurfjölskyldan okkar ekki að fara að taka sig á og hittast allur hópurinn einu sinni á ári? Það væri nú ekki slæmt að geta hitt flókið sitt sem maður sér svo sjaldan.
Ef þú vissir það ekki er dóttir mín með síðu sem þú getur skoðað ef þú vilt.

Kveðja Júlía Rós og co.

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ Ester Una og til hamingju með nýja herbergið þitt , rosalega er það flott , kær kveðja til ykkar , Heiða og fjölsk

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ kæra fjölsk , okkur langaði bara að óska Húsmóðurinni til hamingju með afmælið í dag :) Elsku Ása Sóley til hamingju með daginn , kv Heiða og fjölsk