
Ein heitasta umræðan í Hafnarfirði þessa dagana er hvort stækka eigi álverið eða ekki. Og fáum við sem eigum heima í firðinum að kjósa um það. Ég er ekki búinn að gera upp hug minn varðandi þetta, því svo mörgum af mínum spurningum er enn ósvarað og ekki veit ég hvort ég fái einhvern tímann svör við þeim öllum. Eitt er það sem ég hef velt einna mest fyrir mér, og eru rannsóknir sem ég sá á netinu sem Heilbrigðisnefnd eða stofnun Hafnarfjarðar og kópavogs hafa verið að gera. Mig minnir frá árinu 2000 og rannsóknarstaður er einmitt Holtið í Hafnarfirði, og svo skemmtilega vill til að það er einmitt þar sem við búum. Koma fram, ef það er rétt, ógnvænlegar niðurstöður. Það sem er mælt í þessum rannsóknum er til dæmis, megnun af völdum koltvíoxið, flúors og svifryks. Árið 2001 fórum mælingar á þessu fimm mánuði í röð yfir hættumörk, og einnig hefur þetta verið að gerast, samkvæmt þessum niðurstöðum, nokkrum sinnum á ári. Vill ég taka fram samt sem áður að eflaust er hluti af svifryksmenguninni til komið vegna bilaumferðar af Reykjanesbrautinni. Þá spyr ég...ef Alcan er eins og raunin er ( eftir minni bestu vitund ) búið fullkomnum hreinsunnarbúnaði til að hreinsa útblástur sem fer í andrúmsloftið nái ekki að halda þessu undir hættumörkum eru þeir þá eitthvað frekar að ná að halda þessu niðri þegar álverið er orðið meira en helmingi stærra ??? á það sem er að fara frá Þeim þá ekki bara eftir að verða helmingi meira. þetta er það sem ég hef verið að velta einna mest fyrir mér.

Auðvitað er fjárhagslega gott fyrir Hafnfirðinga að fá stækkun á álverið, tekjur bæjarins yrðu svakalega miklar, beinar tekjur bæjarins geta numið um 800 milljónum á ári. Alcan hefur staðið mjög mikið á bakvið bæinn og íbúa varðandi niðurgreiðslur á íþróttaiðkun barna í firðinum og ýmsum viðburðum í bænum, og það til fyrirmyndar. Ekki væri nú gott ef stækkun yrði felld og á næstu fimmtán árum færi álverið. Og hvað þá ? Þá þurfum við sem búum í þessu bæjarfélagi að fara að greiða fyrir til dæmis íþróttaiðkun barnana, og eflaust myndi ýmislegt annað hækka til að vega upp á móti tekjunum sem bærinn hefði þá misst vegna flutnings eða lokun álversins. Svo ekki sé talað um alla þá sem myndu missa vinnuna. Eiga einungis Hafnfirðingar að fá að kjósa um þetta eða á að gera þessa að þjóðaratkvæðagreiðslu ?? Á íbúðarverð hér á holtinu svo ég tali nú ekki um á Völlunum eftir að hrapa í kjölfar stækkunnar, vill einhver búa með risa stórt álver í bakgarðinum hjá sér. Það er eitt og annað sem maður hefur verið að velta fyrir sér, en enga afgerandi niðurstöðu fengið í þær pælingar. Mjög naumt hefur verið á skoðanakönnunum sem hafa verið gerðar þannig að það er spurning hvoru megin þetta lendir, það er allavega eitthvað sem erfitt er að spá um. Það hafa allir skoðun á þessum máli, það er bara það versta að ég veit ekki hver mín skoðun er. Er einhver sem getur hjálpað mér ?? Hér er hægt að kynna sér nánar um hvað málið er að snúast á báða bóga. Með eða á móti ?? Það er stóra spurningin
http://alcan.is/?PageID=221 http://www.solistraumi.org/
3 ummæli:
Lestu Draumalandið, pistillinn væri líklega endurskoðaður eftir þann lestur!
Það er eitthvað sem ég á eftir að gera, geri það mjög fljótlega
Já Draumalandið, skyldulesning hvers núlifandi íslendings
Skrifa ummæli