Gleðilegt nýtt ár allir sem einn, og takk fyrir það gamla.
Nýja árið leggst voðalega vel í okkur stórfjölskylduna á Holtinu.
Við áttum mjög svo notalega stund í Garðabæ á gamlárskvöld, þar var saman komin stór hópur af stórglæsilegu fólki. Addi og Ragna komu með krakkana til ísland til að reyna að sprengja upp stóran hluta af Garðabæ, svo voru Guðjón afi og Inga amma, og svo auðvitað gestgjafarnir í Garðabæ Kristján afi og Ester amma ásamt honum Guðjóni Inga.
Flugeldaleiðangur: Leitað var að stærstu skotkökum sem voru seldar á stórhöfuðborgarsvæðinu og fundust þær í skuggalegu hverfi í kópavogi þar sem skuggalegir menn voru bak við heimatilbúið afgreiðsluborð. Var farið út með þrjár af stærstu kökum sem seldar voru hjá þessum mjög svo skuggalegu mönnum, með þær leiðbeiningar í farteskinu, að alls ekki mætti kveikja á þessu þar íbúðir eða fólk væri nálægt " þetta þarf að vera á opnum svæði " Einnig var keypt svakalega mikið af risaflugeldum sem voru hátt í það að vera jafnstórir og ég og Addi mágur. Þurfti heilan Nissan Almera og eitt stykki Ford fjölskyldu-Focus til að koma öllum herlegheitunum út úr skuggahverfi Kópavogs og beinunstu leið inn í Garðabæ. Þegar þangað var komið var hlaupið með þetta í neðanjarðarbyrgið í Hlíðarbyggð 17, þetta var mjög leynileg aðgerð þar sem verstu óvinirnir voru nágrannarnir, það átti að toppa þá algerlega og láta þá gefast upp fyrir klukkan tólf á miðnætti.
Þrif: Jæja að þessu öllu loknu var farið heim til að þrifa fjölskylduna enda kominn tími til. Liðið klætt í sparifötin og dubbaðir upp klárir til að mæta í veisluna
Veislan: við viljum byrja á því að þakka Ester ömmu og Kristjáni fyrir frábæran mat og veigar, þetta er erfitt að toppa fyrir nokkurn. Boðið var uppá tviréttaðan forrétt, smyglvarning frá Svíþjóð sem var î formi gæsalifra og rækjur, svo var borðið á borð kalkúnn sem var á stærð við kálf...hvílík stærð ég segi nú ekki annað.
Þetta var glæsileg brenna og einnig flugeldasýning sem Hjálparsveit skáta í garðabæ stóð fyrir, allir skátar geta verið stoltir af henni.
Á leiðinni heim var smáfólkið farið að verða óþreygjufullt og vildi fara að skjóta upp þessum flugeldum og kökum sem til voru í neðanjarðarbyrginu hjá afa, en nei nei bíða bíða..
Þegar inní hús var komið gegnfreðinn og kalinn, beið okkar ís...já ég veit en það var svakalega gott að fá sér heimagerðan ís ala amma.
Svo var setjið aðeins fram eftir miðnætti og kjaftað, en krakkarnir voru nokkuð hressir, Ester Una fór að vísu síðust að sofa og var það þegar klukkan var að ganga tvö. Við skötuhjúin fór heim eitthvað um tvöleytið eftir vel heppnað kvöld.
Við viljum enn og aftur þakka fjölskyldunni í Garðabæ fyrir okkur og einnig Adda og Rögnu fyrir samverustundirnar
Til að skoða myndir frá gamlársdag, smellið hér
Yfir og út..Holtsgengið
1 ummæli:
einungis að athuga hvernig þetta virkar
Skrifa ummæli